|
Hraunar var sýndur 5 vetra á síðsumarsýningu á Gaddstaðaflötum síðastliðið sumar af Erlingi Erlingssyni. Hann fékk 7.94 fyrir sköpulag og 8.29 fyrir hæfileika. Þar af 9 fyrir tölt og 8.5 fyrir stökk, vilja og geðslag, fegurð í reið og hægt tölt. Brokk einkunin sker sig úr, 6.5, en ljóst er að hún mun breytast í vor því Hraunar býr yfir afbragðs brokki þó hann hafi ekki sýnt það á þessari sýningu.
Stefnt er með Hraunar á Landsmót á Vindheimamelum nú í sumar. Hann verður í þjálfun á Húsavík fram á vorið.
Nánari upplýsingar hjá Gísla í síma 898-2207 & 464-2207, eða á vefpósti á einar@hhestar.is
|