|
Stuðlar er á þriðja vetur. Hann er undan Draumi frá Lönguhlíð sem er 5 vetra ósýndur stóðhestur. Óvíst er hvort Draumur verði nokkurntíman sýndur sökum meiðsla. Draumur er móbrúnn, stjörnóttur.
Draumur er undan Aroni frá Strandarhöfði og Sædís frá Stóra-Sandfelli 2. Aron hefur hlotið í aðaleinkunn 8.54, þar af fyrir hæfileika 8.75.
Sædís, móðir Draums, er undan heiðursverðlaunahestinum Huga frá Hafsteinsstöðum og Glódísi frá Stóra-Sandfelli 2.
Sædís er klárhryssa og 5 vetra gömul fékk hún fyrir byggingu 8.33, hæfileika 8.47 og í aðaleinkunn 8.41 á FM á Austurlandi 2003. Í hæfileikum fékk hún fimm 9 og 9.5 fyrir fegurð í reið.Þá stóð hún hæst af 5 vetra hryssum yfir landið það árið.
Stuðlar er hálslangur, bolléttur og háfættur foli. Hann hefur þroskast mikið í sumar og verður spennandi að byrja að temja hann í vetur.

Hrauna og Þórður .....................................................Sædís og Hans Kjerulf
Þess má til gaman geta að í báðum ömmum (Urð og Sædís) og báðum öfum (Orri og Aron) Stuðlars er kynbótaeinkunnin fegurð í reið 9.5.
Stuðlar sumar 2011
|